Skilmálar og afhending

Upplýsingar um fyrirtækið

PYRIT EHF

561020-0430

787-6080

PYRIT@PYRIT.IS

 

 

PYRIT EHF áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar þegar greiðsla hefur verið staðfest.

Viðskiptavinur getur fengið vörurnar sendar í pósti eða sótt þær.

Heimsending

Vörurnar eru sendar heim að dyrum með Íslandspósti, sé ekki unnt að taka við sendingunni þarf að sækja hana á næsta pósthús.

Sækja


Veljir þú að sækja pöntun frekar en að fá hana senda verður hún afhent á fyrrgreindum tíma um leið og staðfesting greiðslu hefur verið staðfest.  Tölvupóstur verður sendur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar. 



Smelltu hér til að sjá staðsetningu í Google Maps.

Verð og verðbreytingar

Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti og birt með fyrirvara um villur. Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust t.d. vegna rangra upplýsinga, skráningar eða gengi krónunnar.
PYRIT áskilur sér rétt til að fella niður pantanir og endurgreiða séu villur í verðum þegar pantað er.

 

Að skipta og skila vöru

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því gefnu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðslu ef þess er krafist.

Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.